![]() |
|||||||
|
|
Fjöllin í Fjarðabyggð eru mjög einkennandi fyrir svæðið og hafa mikil áhrif á mannlífið. Að dvelja í fjörðunum innan um fegurð fjallana veitir mikin innblástur og óútskýrlanlegan kraft. Þegar komið er í Fjarðabyggð taka fjöllin þig í faðm sér, bjóða þig velkominn og hugsa vel um þig. Allir eru sammála því að útivist og hreyfing sé nauðsynleg fyrir alla og er fjallameðferð því góð fyrir líkama og sál. Fjarðabyggð er draumastaður fyrir útivist á svæðinu er fjöldi merktra gönguleiða og hefur svæðið að geyma eitt mest spennandi göngusvæði Íslands Gerpissvæðið milli Norðfjarðar og Reyðarfjarðar sem einnig er austasti hluti landsins. Sama hvert farið er blasir við stórbrotið útsýni, hægt er að njóta kyrrðarinnar og rýna í andlit fjallanna. Fjallameðferð henntar öllum þar sem í henni getur falist ganga í fallegu umhverfi eftir miserfiðum leiðum, afslöppun í sundlaugunum með frábærri fjallasýn eða að gæða sér á máltíð úr hráefni sem fjöllin gefa.
|
||||||