|


 |
Við bjóðum gestum okkar að skipuleggja fyrir þá ýmiskonar afþreyingu s.s. veiðiferðir, skíðaferðir, svæðisleiðsögn, náttúruskoðun, köfun, ísklifur, fuglaskoðun, hellaskoðun, hreindýraleiðsögn, bátsferðir, hvataferðir, skoðunarferðir, kajakferðir, óvissuferðir, gönguferðir, stjörnu– og norðurljósaskoðun, hestaferðir, golf, gönguferð að flugvélaflaki ofl.. Í Fjarðabyggð eru einnig
fjölbreytt og skemmtileg söfn og margvíslegar söguslóðir.
Við erum einnig með bátaleigu sem staðsett er í Randulffssjóhúsi. Bátarnir eru samtals 9, allir sex manna smábátar að gerðinni Corsiva 430. Bátarnir eru 4,3 metra langir og eru með 4hp Selva utanborðsmótora.
Í Randulffssjóhúsi eru langborð fyrir allt að áttatíu manns auk grill- og salernisaðstöðu. Á efri hæð hússins er verbúð síldarsjómannana í sinni upprunalegu mynd þar sem gestum gefst tækifæri til að kynna sér aðstæður sjó- og verkamanna hér á árum áður. Við bjóðum uppá ýmsar uppákomur í húsinu s.s. grillveislur, ættarmót og annan mannfagnað þar sem boðið er uppá hákarl og harðfisk sem framleiddur er á Eskifirði. Meira um Randulffssjohus má finna hér.
Í Fjarðabyggð eru einnig fjölbreytt og skemmtileg söfn, frábærar sundlaugar og margvíslegar söguslóðir.
|