Á og við Mjóeyri er mikið og fjölskrúðugt fuglalíf.  Á vorin eru leirurnar í botni Eskifjarðar fullar af fuglalífi.  Á Gerpissvæðinu verpir stór hluti íslenski fuglaflórunnar og þar er víða hægt að fylgjast með fuglum í sínu náttúrulega umhverfi.  Stutt er í fuglabjörg og lundabyggðir.
Á svæðinu eru einnig bjargdúfubyggðir sem auðvelt er að nálgast.  Einnig slæðast hingað margir flækingsfuglar frá Evrópu.