randulf

gongu

 

Dagskrá göngu- og gleðivikunnar ,,Á fætur" í Fjarðabyggð 19.-26.júní 2010:

Laugardagur 19.júní

kl 10:00.
1.Göngu og bátsferð á Barðsneshorn

Mæting við safnahúsið á Norðfirði þaðan sem bátur flytur fólk að Barðsnesi.
Gengið frá Barðsnesbænum og út með Rauðubjörgum og yfir á Mónes. Steingerfingarnir í fjörunni skoðaðir. Gengið út á Barðsneshorn og þaðan inn á Barðsnes.
Ína D. Gísladóttir fer styttri hring og rifjar upp sögur.
Báturinn tekin til baka.
Fararstjóri: Sævar Guðjónsson. Sími: 698-6980.
Verð kr. 2.000.- fyrir fullorðna.

Kl 20:00
2.Sólstöðuganga á Álffjall

Mæting á Víkurheiði. Gengið frá heiðinni út með Illahjalla,Stórafelli og yfir Sléttuskarð þaðan sem uppganga er á fjallið. Um 7km ganga fram og til baka.
Doddi á Skorrastað stjórnar fjallasöng. Fjallameðferð
Fararstjóri: Kristinn Þorsteinsson, sími: 864-7694
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.

Kl 21:00
Kvöldvaka í Randulffssjóhúsi

Í umsjá Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð.
Sagnaþulurinn Friðrik Þorvaldsson segir okkur sögurnar af Breiðuvíkurkaupstað og einokunarverslun Dana, sú saga tengist gönguferð sunnudagsins Í fótspor Magnúsar sterka. Listamaður Gönguvikunnar, Sigmundur Ernir Rúnarsson flytur fjallaljóð.
Leikin verður lifandi tónlist. Verð kr. 1.000.- fullorðna.

Sunnudagur 20.júní

Kl 10:00
3. Í fótspor Magnúsar Sterka.

Mæting við Útstekk í norðanverðum Reyðarfirði
Gengið frá Útstekk um Haugaöxl, Karlstaðarsveif, Vindháls og Kvígindisdal í Hellisfjörð (um 20 km). Rifjaðar upp sögurnar af Magnúsi sterka, dysinni í Dysjarskarði og fl. Frá Hellisfirði verður bátsferð til Norðfjarðar. Þeir hörðustu geta gengið áfram um Götuhjalla að Grænanesi í Norðfirði.
Fararstjóri: Sævar Guðjónsson. Sími: 698-6980.
Verð kr. 2.000.-fyrir fullorðna.

Kl 17:00
4. Fjölskylduganga um Hólatjarnir í Fannardal.

Mæting innan við Naumamel í Fannardal.
Ævintýraland, dansað fyrir náttúruna, fjallameðferð og leikir. hafið með ykkur gott nesti. Fararstjóri: Ína D. Gísladóttir, sími: 894-5477.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.


Kl 21:00
Kvöldvaka í Randulffssjóhúsi

Hljómsveitin FARVEL frá Norðfirði skipuð þeim Jóni Hilmari Kárasyni gítar, Valdimari Þór Valdimarssyni söngur og gítar, Þorláki Ægi Ágústssyni bassa og Orra Smárasyni á trommur munu flytja frumsamið efni í bland við lánað. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá. Verð kr. 1.000.


Mánudagur 21.júní

Kl 10:00.
5.Gengið á Goðaborg 1132m
(eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)
Mæting við Tandrastaði í Fannardal Norðfirði.
Fararstjórar: Árni Ragnarsson og Kristinn Þorsteinsson, sími: 864-7694.
Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.

Kl 17:00
6. Fossaskoðunarferð í Eskifirði.

Mæting við Veturhús.
Gengið upp með Innri Þverá upp í Þverárdal og niður með Ytri Þverá.
Fossar og berggangar skoðaðir.
2-3 klst.ganga fyrir alla fjölskylduna.
Fararstjóri: Sævar Guðjónsson, sími: 698-6980.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.

Kl 21:00
Kvöldvaka á Mjóeyri

Í umsjá Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð.
Yngri kynslóðin skemmtir þetta kvöld. Aðgangur ókeypis.


Þriðjudagur 22.júní

Kl 10:00
7.Gengið á Hólmatind 985m
(eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)
Mæting við Sómastaði í Reyðarfirði
Fararstjórar: Kristinn Þorsteinsson og Árni Ragnarsson, sími:864-7694.
Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.

Kl 17:00
8.Hólmanes, göngu og bátsferð fyrir alla fjölskylduna

Mæting neðan við sjónvarpsmastrið sunnan Eskifjarðar
Gengið eftir fræðslustígum út með Eskifirði að Skeleyri og út á nesið. Sögur sagðar og fjölbreitt plöntu og fuglalíf skoðað. Gengið inn að Borgarsandi þar sem bátar Bátaleigu Mjóeyrar og ræðarar frá Kajakklúbbnum Kaj bíða göngugarpa.
kl 19:00 Grillveisla á Borgarsandi
Allir sem vilja koma sjóleiðina velkomnir í grillið. Ef veður leifir verður siglt til baka.
Farstjóri: Berglind Steina Ingvarsdóttir, sími: 696-0809.
Skipstjóri: Sævar Guðjónsson, sími: 698-6980.
Verð í göngu og grill kr. 1.500.- fyrir fullorðna.

Kl 21:00
Kvöldvaka á Mjóeyri

Í umsjá Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð og Kajakklúbbsins Kaj.
Lifandi tónlist og kajakar. Aðgangur ókeypis.

Hægt verður að prófa kajak í Mjóeyrarvíkinni. Verð kr.500.-


Miðvikudagur 23.júní

Kl 10:00
9.Gengið á Hádegisfjall 809m
(eitt af fjöllunum fimm í fjarðabyggð)
Mæting á bílastæðið við Fáskrúðsfjarðargöngin, Reyðarfjarðarmegin.
Fararstjórar: Árni Ragnarsson og Kristinn Þorsteinsson, sími: 864-7694.
Verð kr. 500 fyrir fullorðna.

Kl 17:00
10.Gönguferð fyrir alla fjölskylduna upp með Búðará í Reyðarfirði

Mæting við Stríðsárasafnið.
Gengið þaðan upp með Búðarárgili og það skoðað. Stíflan ofan við gilið skoðuð og lögnum frá henni fylgt niður að stöðvarhúsinu þar sem við fáum að skoða rafstöðina og hvernig rafmagnið verður til.
Fararstjóri: Þóroddur Helgason, sími: 860-8331. Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.

Kl 21:00
Kvöldvaka í Randulffssjóhúsi

Í umsjá Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð.
Söng- og leikkonan Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa) skemmtir ásamt Daníel Ara.
Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.

Kl. 23:00
11."Nóttin er ung" Næturganga á Jónsmessunótt.

Mæting við Geithúsá í Oddsdal.
Gengið frá Geithúsá í Oddsdal um Hnúka og Hellisfjörð til Norðfjarðar. Yoga í átt til sólar í dögun, fjallameðferð. Takið með ykkur gott nesti og njótið sumarnæturinnar (6 tímar).
Fararstjóri: Ína D. Gísladóttir, sími: 894-5477. Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.

Fimmtudagur 24.júní

Kl 10:00
12. Gengið á Kistufell 1239m
(eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)
Mæting við Áreyjar í Reyðarfirði
Fararstjórar: Kristinn Þorsteinson og Árni Ragnarsson, sími: 864-7694.
Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.

Kl 17:00
13. Gönguferð fyrir alla fjölskylduna upp með Svartagili í Fáskrúðsfirði.

Mæting á snúningsplaninu sunnan Fáskrúðsfjarðar, móti kaupsstaðnum.
Gengið upp með Svartagili, fossar og berggangar í gilinu skoðaðir.
Um 2 klst. gangur.
Fararstjóri: Eyþór Friðbergsson, sími: 865-2327. Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.

Kl 21:00
Kvöldvaka í Randulfssjóhúsi

Sagnaþulurinn frábæri Berglind Ósk Agnarsdóttir kveður rímur og skemmtir okkur þetta kvöld ásamt lifandi tónlist. Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.


Föstudagur 25.júní

Kl 10:00
14. Gengið á Svartafjall 1021m
(eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)
Mæting á gamla Oddsskarðsveginn Eskifjarðarmegin
Fararstjórar: Kristinn Þorsteinsson og Árni Ragnarsson, sími: 864-7694
Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.


Kl 17:00
15. Gengið að Einbúanum sem fallið hefur úr brúnum Gráfells
og að steinboganum í Álftafelli.

Mæting við bæinn Stöð í Stöðvarfirði
Fararstjóri: Sara Jakobsdóttir, sími: 896-0349. Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.

Kl 20:00
Sjóræningjakvöldvaka á Mjóeyri

Ýmis óvænt atriði verða þetta kvöldið. Eiríkur kóngur I. Langsokkur einvaldi á Kattarattarey mætir á svæðið ásamt dóttur sinni Línu Langsokkur og sjá þau til þess að allir skemmta sér vel saman. Varðeldur og lifandi tónlist. Aðgangur ókeypis.

Laugardagur 26.júní

Kl 10:00
16. Gengið fyrir Krossanes til Vöðlavíkur

Mæting við Karlsskála við norðanverðan Reyðarfjörð
Gengið frá Karlsskála um Karlskálaskriður, Krossanesskriður og Kirkjubólsskriður til Vöðlavíkur. Gengið að flaki Henkel 111, þýskrar orrustuflugvélar, á Valahjalla.
Fararstjóri Sævar Guðjónsson, sími: 698-6980.
Verð kr. 2.000.- fyrir fullorðna.


Kl. 12:00
17. Fjöruferð og söguganga í Vöðlavík.

Mæting við Karlsstaði skála Ferðafélags Fjarðamanna í Vöðlavík.
Gengið út víkina, sögur sagðar af byggðinni í víkinni og fleiri sögur.
Ingibjörg Þ. Stefánsdóttir mætir í gönguna en hún er fædd og uppalin á Ímastöðum í Vöðlavík.
Sandkastalabygging á sandinum og fl. Veitingar að Karlsstöðum í lok ferðar.
Fararstjóri: Ína D. Gísladóttir, sími: 894-5477.
Verð kr. 1.500.- fyrir fullorðna. Veitingar innifaldar í verði.


Kl.20:00
Vegleg Lokakvöldvaka á Mjóeyri

Í umsjá Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð og fl. Grillveisla í boði Eskju.
Útisvið, lifandi tónlist og varðeldur. Aðgangur ókeypis.


" Frítt er fyrir 16 ára og yngri í gönguvikuna en skilyrði er að þau séu í fylgd með fullorðnum.
" Náttúru og leikjanámskeið verður alla dagana frá kl. 9:30-17:00 á vegum Náttúrustofu Austurlands og Ferðaþjónustunnar Mjóeyri.
Forgang hafa börn ,,Göngugarpa". Nánari upplýsingar og bókanir hjá Berglindi í síma 696-0809 eða 477-1247.


Fjöllin fimm í Fjarðabyggð - Ferðafélag Fjarðamanna hefur komið fyrir gestabókum og stimplum á fimm fjöll í Fjarðabyggð. Fjöllin eru: Kistufell 1239 m, Goðaborg 1132 m, Svartafjall 1021 m, Hólmatind 985 m og Hádegisfjall 809 m. Til þess að hljóta nafnbótina Fjallagarpur Fjarðabyggðar þarf að kaupa þar til gert stimpilhefti og stimpla í það nafn hvers fjalls þegar komið er á topp þess. Heftinu er svo framvísað fullstimpluð til Ínu s: 8945477 Urðarteigi 8 740 Neskaupstað. Í sigurlaun er handunnin verðlaunagripur frá félaginu og mynd af viðkomandi á heimasíðuna www.simnet.is/ffau. Unglingar fimmtán ára og yngri fá sömu viðurkenningu eftir að hafa gengið á þrjú af fimm verðlaunafjallanna að eigin vali. Börn og unglingar verða að vera í fylgd fullorð. Stimpilheftin kosta kr. 500 og fást hjá leiðsögumanni í upphafi ferða.


Sundlaugar:
Norðfjörður: Útilaug með vatnsrennibrautum, pottum, gufubaði, líkamsræktarstöð og frábærri sólbaðsaðstöðu. Opið virka daga frá 06:30-20:00 og um helgar frá 10:00-18:00.
Eskifjörður: Glæsileg ný útilaug með rennibrautum, heitum pottum, gufubaði og líkamsræktarstöð. Opið virka daga frá 06:30-21:00 og um helgar frá 10:00-18:00.
Fáskrúðsfjörður: Innilaug, opin virka daga frá 17:00-20:00 og á laugardögum frá 10:00-13:00.
Stöðvarfjörður: Lítil útilaug með heitum potti, opin virka daga frá 13:30-19:20, á laugardögum frá 11:00-16:20 og á sunnudögum frá 13:30-16:20 á sumrin.

Frítt er á tjaldsvæðin á Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.


Sjóminjasafn Austurland
Strandgata 39b, Eskifjörður, sími 470 9063, peturs@fjardabyggd.is
Opið 13:00 - 17:00 alla daga vikunnar, frá 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi.

Steinasafn Sörens og Sigurborgar
Lambeyrarbraut 5, Eskifjörður, sími 476 1177
Ekki er opið á formlegum tíma en allir eru velkomnir þegar Sigurborg er heima. Einnig er hægt að hringja á undan sér í síma 476 1177.

Steinasafn Petru
Fjarðabraut 21, Stöðvarfjörður sími 475 8834/866 3668, www.steinapetra.com
Opið 09:00 - 18:00, alla daga vikunnar.

Íslenska stríðasárasafnið
Spítalakamp v/Hæðargerði, Reyðarfjörður sími 470 9063, peturs@fjardabyggd.is
Opið 13:00 - 17:00 alla daga vikunnar, frá 1.júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi.

Safnahúsið Norðfirði
Egilsbraut 2, Norðfirði, sími 470 9063, peturs@fjardabyggd.is
Opið 13:00 - 17:00 alla daga vikunnar, frá 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi.
" Myndlistarsafn Tryggva Ólafssonar
" Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar
" Náttúrugripasafn Austurlands

Fransmenn á Íslandi
Búðarvegi 8, Fáskrúðsfjörður, sími 475 1525/864 2727
fransmenn@fransmenn.is www.fransmenn.is
Opið 10:00-17:00 alla daga vikunnar á sumrin.


Að gönguvikunni standa:
Ferðaþjónustan Mjóeyri, Ferðafélag Fjarðamanna, Göngufélag Suðurfjarða, Fjarðabyggð,
Ferðamálafélag Fjarðabyggðar. www.simnet.is/ffau, www.mjoeyri.is, www.fjardabyggd.is

Styrktaraðilar:
Alcoa Fjarðaál
Eskja
Fiskimið Exporting ehf
Landsbankinn
Austfjarðaleið
Fleiri......