Á sumrin bjóðum við upp á hreindýraleiðsögn ásamt  bíl með bílstjóra, aðstöðu fyrir verkun og kælingu og úrbeiningu kjötiðnaðarmans. Þannig geta veiðimenn geta fengið kjötið sent til síns heima tilbúið í neytendaumbúðum. Auk þess er gistiskálinn okkar sérstaklega hugsaður með þarfir veiðimanna í huga. Sævar Guðjónsson hreindýraleiðsögumaður á svæðum 4 og 5 býr á Mjóeyri.