|


11.nóvember 2011
Dagar Myrkurs - Rómantískir dagar á Eskifirði
Nú eru dagar myrkurs á Austurlandi og af því
tilefni verðum við með rómantíska dagskrá
um helgina.
Laugardagurinn 12.nóv
kl 20.30 Ástareldur tendraður í fjörunni.
Snæþór Jóseps skemmtir.
Seiðandi kakó, sykurpúðar og rómó
stemming.
Sunnudagurinn 13.nóv
Bílabíó á Mjóeyri.
Barnasýning kl 18 og fullorðinssýning kl 20:30
Ókeypis aðgangur en 10.bekkur grunnskólans veður
með popp, gos og nammi til sölu á staðnum.
Tilboð á gistingu þessa helgi :)
28.júní
Minnum á að Randulffs-sjóhús er nú
opið sem veitingarstaður í allt sumar frá
kl 17.00-21.00. Austfirskar krásir!
Matseðilinn má sjá hér.
25.júní
Síðasti dagur gönguvikunnar gekk vel!
Síðasta langa ganga gönguvikunnar var frá
Viðfirði um Sandvík til Vöðlavíkur.
Gangan gékk mjög vel og 37 göngugarpar gengu
með Sævari. Fjölskylduganga dagsins var farin frá
skála Ferðafélags Fjarðamanna og gengið
niður á sand. Ingibjörg Stefánsdóttir
frá Ímastöðum leiðsaði um Víkina
og sandkastalar voru gerðir á sandinum. Báðir
hópar hittust svo í skálanum þar sem
Ína og fleiri góðar konur tóku á
móti gestum með kaffi, kakó og ýmsum
góðum veitinum. Ásta spilaði á harmonikku
og Ingibjörg las upp endurminningar frá uppvaxtarárum
sínum í Vöðlavík. Um kvöldið
var svo kvöldvaka hér á Mjóeyri þar
sem Eskja bauð öllum upp á grillaðar pylsur.
Þökkum öllum sem tóku þátt
í gönguvikunni fyrir þátttökuna
og vonumst til að sjá sem flesta að ári.
24.júní
Næst síðasti dagur gönguvikunnar
Í dag verður farið á Svartafjall og
þar verða haldnir örtónleikar
í 1021m hæð. Mæting kl 10.00 á
gamla Oddsskarðsveginn, Eskifjarðarmegn. Hátíðleg
stund þegar niður er komið þar sem þetta
er síðasta fjallið í leiknum ,,fjöllin
fimm".
Kl 17.00 verður fjölskylduganga um Kambanes þar
sem gengið er með ströndinni hringinn á Kambanesinu.
Flott ganga þar sem víkur, vogar og berggangar eru
skoðaðir. Mæting við afleggjarann niður
á Kambanes.
Kl 20.00 verður svo Sjóræningja kvöldvaka
á Mjóeyri í umsjá Leikfélags
Reyðarfjarðar, ýmis óvænt atriði
verða þetta kvöldið og að sjálfsögðu
verður varðeldur tendraður.
23.júní
Flottur dagur framundan í Gönguvikunni. Gengið
á Kistufell 1239m. Mæting kl 10 við Áreyar
í Reyðarfirði. Kl 17.00 Fjölskylduganga upp
með Skjólgilsá í Fáskrúðsfirði.
Mæting á bílastæðið við
Kirkjubólsbraut vestan þéttbýlis.
Kl 20.30 ,,Nóttin er ung" Næturganga á
Jónsmessunótt. Mæting við Geithúsá
í Oddsdal. Skemmtileg ganga og yoga í átt
til sólar - fjallameðferð :)
Kvöldvakan í kvöld verður svo haldin í
Randulffs-sjóhúsi kl 21.00. Sagnaþulurinn
Berglind Ósk Agnarsdóttir kveður rímur
og skemmtir þetta kvöld.
22.júní
Velkomin á fætur!
Í dag verður farið á Hádegisfjall
809m. Mæting kl 10.00 á bílastæðið
við Fáskrúðsfjarðargöng. Kl 17.00
verður svo farin fjölskylduganga upp með Geithúsárgili
í Reyðarfirði. Mæting við fótboltavöllinn
við Grænafell. Í kvöld kl. 21.00 verður
svo kvöldvaka á Randulffssjóhúsi þar
sem þeir Hafdalsbræður skemmta með fjölbreyttri
dagskrá en þeir voru sigurvegarar í ár
í trúbadorakeppni FM957. Allir að koma og hlusta
á eskfirksu strákana sem eru að slá í
gegn :)
21.júní.
Hægt er að skoða myndir frá Gönguvikunni
á www.facebook.com og velja Ferðaþjónustan
Mjóeyri
21.Júní
Allir Á Fætur með Gönguvikunni í
dag!!!
Í dag verður farið á Hólmatind.
Mæting við Sómastaði í Reyðarfirði
kl 10. Flottur dagur til að fara á tindinn og við
hvetjum alla sem geta til að fara með. Kl 17.00 verður
svo farin fjölskylduganga frá Flesjum um Langasand,
víkur og voga inn aðBorgarhól (keyrt frá
Eskifirði eins langt út fjörðinn og hægt
er). Kvöldvakan verður svo á Borgarhól
í kvöld og hefst kl 19.00. Grill, varðeldur, lifandi
tónlist, dans og kajakar.
Allir að fjölmenna á Borgarhól :)
Frekari lýsingu á ferðum dagsins má sjá
hér.
20.Júní
Athugið!!
Kvöldvakan í kvöld verður færð
inn í Randulffs-sjóhús.
Yngri kynslóðin skemmtir. Allir velkomnir.
Ókeypis inn
17. Júní
Náttúrufræðinámskeið
Minnum á Náttúrufræðinámskeið
fyrir krakka á aldrinum 8-10 ára sem verður
dagana 20.-24. júní kl 9 til 12. Farið verður
t.d. í fjöruferð, Helgustaðanáman skoðuð,
lífríki vatnsins kannað og smádýrum
og plöntum safnað.
Hámarksfjöldi þáttakenda er 10. Forgang
hafa börngöngugarpa.
Námskeiðsgjald er 3.000 kr fyrir barn.
Upplýsingar og skráning er hjá Mjóeyri
sími 477-1247.
17.Júní
Gönguvikan byrjar á morgun 18.júní.
Göngu og bátsferð á Barðsneshorn og
Sandfell á morgun. Mæting kl 10.00 við Safnahúsið
í miðbæ Neskaupstaðar.
Kl. 20.00 Sólstöðuganga á Hátún
í Norðfirði 747m. Mæting við gangnamunna
Oddsskarðsganga Norðfjarðamegin.
Kl. 21.00 Kvöldvaka á Randulffssjóhúsi.
Söngkonan Selma Björnsdóttir og hljómsveit
hússins halda uppi fjöri fram eftir kvöldi.
Allir velkomnir :) Dagskrá
gönguvikunnar
16.Júní
Randulffssjóhús opnað sem matsölustaður
Verðum með opið á Randulffs-sjóhúsi
í allt sumar frá kl 17.00-21.00.
Matseðill - Vínveitingar - Gestamóttaka - Bátaleiga
ofl.
Matseðilinn má sjá hér.
|