
Við hjá Mjóeyri bjóðum upp á náttúruskoðun að ýmsu tagi og teljum okkur vera með góða þekkingu hvað það varðar, auk þess sem staðsetning okkar er mjög hentug. Hér er náttúran fjölbreytileg og stutt í óspillta náttúru. Fjaran er hér allt í kring og stutt er til fjalla. Lækir og tjarnir í nágernninu búa yfir töfraheimi auk þess sem gróðurinn er mjög fjölbreyttur. Þrjú friðlýst svæði eru í Fjarðabyggð, öll með sína sérstöðu. Fólkvangur í Neskaupstað, Friðland og fólkvangur í Hólmanesi við Eskifjörð og Helgustaðarnáma í Helgustaðarhrepp.
|