Randulffssjóhús Eskifirði opnað almenningi í samstarfi við Ferðaþjónustuna Mjóeyri.

    

Randulffssjóhús er í eigu Sjóminjasafns Austurlands. Húsið var byggt um 1890 og var lengst notað sem síldarsjóhús en síðan Sjóminjasafnið eignaðist það hefur það tengst safnastarfi safnsins.

Í fyrsta skiptið nú, er sjóhúsið opið almenningi. Búið er að koma upp gestamóttöku í sjóhúsinu og þaðan veður bátaleiga Mjóeyrar gerð út. Langborð eru fyrir allt að áttatíu manns auk grill- og salernisaðstöðu.   Húsið hefur verið endurnýjað að hluta og telst ástand þess mjög gott.  Auk gestamóttöku og þjónustumiðstöðvar bátaleigunnar verður hluti hússins nýttur til sýningarhalds á hlutum  sem tengdir eru sjóhúsinu og þeirri starfsemi sem þar hefur verið í gegn um tíðina. 

Húsið verður opið almenningi á opnunartíma bátaleigunnar, eða eftir samkomulagi.  Er það liður í að auka fjölbreyttni í menningartengdri ferðaþjónustu á svæðinu.  Á efri hæð hússins er verbúð síldarsjómannana í sinni upprunalegu mynd þar sem gestum gefst tækifæri til að kynna sér aðstæður sjó- og verkamanna hér á árum áður.  

Samstarfið við Sjóminjasafnið og flutningur bátaleigunnar í Randulffssjóhús kemur til með að opna ýmis tækifæri og auka möguleika okkar á að taka á móti stærri og fjölbreyttari hópum. Það að tengja svo bátaleiguna og útgerð bátanna Randulffssjóhúsi teljum við vera nýnæmi á Íslandi. Hvað er skemmtilegra en að kynna sér útgerðarmenningu fiskiþorps eins og Eskifjarðar með því að skoða gamallt sjóhús í sinni upprunalegu mynd, fara á sjó, veiða fisk og svo ef til vill grilla aflan þegar komið er að landi.

Fyrirhugað er að haldnar verið ýmsar uppákomur í húsinu s.s. grillveislur, ættarmót og annar mannfagnaður þar sem boðið verður uppá hákarl og harðfisk sem framleiddur er á Eskifirði. 

Í þeim hluta hússins sem bátaleigan er staðsett er gert ráð fyrir þjónustuaðstöðu.  Auk þjónustuaðstöðu er þar einnig geymsla fyrir þann búnað er tengist leigunni s.s. björgunarvesti, þurrgallar, veiðistangir of.l.  Bryggjan framan við sjóhúsið verður notuð til að þjónusta útleigða báta.  Búið  er að koma fyrir flotbryggju ásamt landgangi til að auðvelda aðgengi fólks að bátunum.