|

Nýjast:
21.juní 2009
Þriðji dagur gönguvikunnar
53 gengu á Goðaborgina, eitt af fjöllunum fimm,
undir dyggri leiðsögn Kidda Þorsteins.
Veðrið var gott og bjart á tindinum en mikill snjór
á fjallinu. Gestabókin var á bólakafi.
Allt gekk þó vel og renndu flestir sér á
rassinum í snjónum áleiðis niður.
Tær snilld!
Fyrsti dagur náttúruskólans var í
dag. Fóru þær Berglind Steina og Erlín
Emma með þátttakendur inn að Hólatjörnum
í Fannardal. Það voru aðeins fjórir
nemendur í skólanum í dag en verða væntanlega
fleiri á morgun.
Fjölskyldugangan var svo upp með innri Þverá
og niður með þeirri ytri og mættu 30 manns
í þá göngu undir dyggri leiðsögn
Kömmu Daggar sem var að leið segja sína fyrstu
ferð. Allt gekk vel og fossarnir skörtuðu sínu
fegursta en einhverjir göngugarpar höfðu á
orði að þetta væri tveggja skóa ganga
en ekki eins skó eins og auglýst var.
Unga fólkið úr Tónlistarskóla
Eskifjarðar og Reyðarfjarðar skemmti svo við varðeldinn
hérna á Mjóeyrinni í kvöld. Stóðu
krakkarnir sig frábærlega undir stjórn Daníels
Ara og um 120 manns skemmtu sér konunglega.
Á morgun leið segir svo Kiddi á Hólmatindinn,
eitt af fjöllunum fimm og verður lagt af stað kl
10:00. Fjölskylduganga verður svo út í
Hólmanes undir leiðsögn Berglindar Steinu. Grillað
verður á Borgarsandi um kl 19.00 og eru allir sem vilja
sigla þangað velkomnir í grillið.
Reynt verður að bjóða öllum sem vilja
far með bátum heim.
Annað kvöld verður svo kajakklúbburinn Kaj
með kajaka í Mjóeyrarvíkinni til prufu
fyrir þá sem vilja.
Hlökkum til morgundagsins og hvetjum sem flesta til að
taka þátt í viðburðum dagsins.
20.juní 2009
Annar dagur gönguvikunnar
Annar frábær dagur að kvöldi kominn. Íí
dag voru farnar tvær göngur. Sú fyrri var í
fótspor Magnúsar sterka en það var gengið
frá Útstekk að Sveinstaðareyri í
Hellisfirði 20 km. 15 manns gengu undir leiðsögn
Sævars og gekk ferðin mjög vel. Félagar
úr björgunarsveitinni Gerpi fluttu svo göngugarpa
frá Hellisfirði til Norðfjarðar með nýja
harðbotna slöngubáti sveitarinnar Glæsi.
Seinna um daginn fór svo Ína með 30 manns í
fjölskyldugöngu upp að Hólatjörnum í
Fannardal þar sem farið var í leiki sagðar
sögur og fl og skemmtu sér allir vel í veðurblíðunni.
Í kvöld spilaði svo Norðfiska bandið FARVEL
á Randulffs-sjóhúsi en þangað mættu
óvenju fáir, eða um 20 manns. Strákarnir
stóðu sig þó frábærlega og
þeir sem mættu skemmtu sér vel.
Hlökkum til að takast á við skemmtilegan dag
á morgun en þá verður gengið á
Goðaborg eitt af fjöllunum fimm undir leiðsögn
Árna Ragnars og seinnipartinn verður svo fjölskylduganga
upp með þveránum innan við Eskifjörð
en þar verður Kamma Dögg Gísladóttir
leiðsögumaður þar sem Sævar kemst ekki.
Náttúrunámskeið fyrir börn hefst
á morgun og þá verður farið í
Hólatjarnir til að safna vatnadýrum og þau
skoðuð.
Hlökkum til að sjá ykkur í góða
skapinu á morgun.
19.juní 2009
Fyrsti dagur gönguvikunnar
57 manns gengu á Barðsneshorn í dag. Farþegaskipið Skrúður flutti göngugarpa yfir flóann í tveimur ferðum. Stærsti hluti hópsins gekk með Sævari niður á Mónes og út fjöruna að steingerfingunum. Það bar þó helst til tíðinda að steingerfingarnir voru horfnir þar sem gríðarstört bjarg hafði fallið úr klettunum og grafið þá undir. Mikil eftirsjá er í þessu stórmerkilega náttúrufyrirbæri.
Því næst var gengið út á horn og inn Móanefin meðfram Rauðubjörgum og til baka að Barðsnesi. Um 14 manns fóru með Ínu styttri sögugöngu og gekk hún m.a. upp í Skollaskarð og út á Vatnshól.
Frábært gönguveður var í dag, léttskýjað og hlítt og er spáin góð fyrir næstu daga.
Jónsmessuganga var svo farin í kvöld á Skúmhött í Vöðlavík, en þegar þetta er skrifað um miðnætti höfðum við ekki fengið fregnir af fjöldanum þar eða hvernig gekk.
Kl:21:00 var svo kvöldvaka á Randulffssjóhúsi og mættu þar um 90 manns.
Hermenn mættu á svæðið og las Lord Jens Garðar Helgason fyrir gesti um helförina á Eskifjarðarheiði. Að Sjálfsögðu mætti hljómsveitin Radulfarnir á sæðið og tóku nokkur lög í anda hernámsáranna og söng Svandís Ara með þeim, dansað var og sungið til kl 23:00.
Frábær dagur að baki og við hlökkum til að ganga um Svínadal og Hrævarskörð til Eskifjarðar á morgun.
Seinnipartinn fer svo Ína í fjöldskylduferð á Grænafell í Oddsdal.
Hægt verður að sjá myndir frá gönguvikunni inn á Facebook síðu Ferðaþjónustunnar Mjóeyri.
15.júní 2009
Göngu og gleðivikan ,,Á fætur" í Fjarðabyggð 20.-27.júní
Í gönguvikunni verður boðið upp á margvíslega afþreyingu, fjölskyldugöngur, næturgöngur og hina einstöku fjallameðferð sem fæst í Fjarðabyggð. Keppst verður um hinn eftirsótta titil Fjallagarpur Fjarðabyggðar með því að ganga á fimm krefjandi fjöll sem ferðafélag svæðisins hefur valið.
Alla vikuna verða fjölbreyttar kvöldvökur, lifandi tónlist, varðeldur, náttúru- og leikjanámskeið fyrir börnin, kajakferðir ofl ofl.
Dagskránna má nálgast hér
5.júní 2009
ATH Því miður veðrur Jón KjartanssonSU111 ekki kominn heim úr slipp fyrir Sjómannadag, því mun Aðalsteinn Jónsson fara tvær ferðir laugardsginn 6.júní kl 13:00 og 14:00
2.júní 2009
Sjómannadagshelgin framundan
Frábær dagskrá fyrir alla fjölskylduna frá fimmtudegi til sunnudags. Hlökkum til að sjá sem flesta. Dagskránna má nálgast hér.
Góða skemmtun!!
Eldra..
10.febrúar 2009
Ferðaþjónustan býður upp á skíðapakka, í samvinnu við Skíðamiðstöð Austurland þriðja árið í röð.
Gisting + Morgunmatur + Nesti + Skíðapassi + kvöldmatur
Möguleiki á akstri til og frá flugvelli, akstri til og frá skíðasvæði, byrjandakennslu, leiðsögn og s.v.frv.
Dæmi um útfærslu á pakka:
Komið á Mjóeyri á föstudagskvöld og til baka á sunnudagskvöld
Gisting í tvær nætur + Morgunmatur + Nesti + Skíðapassi í Oddsskarð + Kvöldverður = 15.000kr m..v 1 pers.
Á Mjóeyri er einnig aðstaða fyrir umhirðu skíða og við kappkostum okkur við að sinna þörfum hvers og eins með persónulegri þjónustu. Pakkarnir geta því verið mismunandi, t.d helgarpakki, páskapakki, sólahringspakki, hóppakki, gönguskíðapakki osfrv.
Frekari upplýsingar um útfærslu og verð hjá Sævari í síma 698-6980
3.febrúar 2009
Fjallameðferð
Fjöllin í Fjarðabyggð eru mjög einkennandi fyrir svæðið og hafa mikil áhrif á mannlífið. Að dvelja í fjörðunum innan um fegurð fjallana veitir mikin innblástur og óútskýrlanlegan kraft. Þegar komið er í Fjarðabyggð taka fjöllin þig í faðm sér, bjóða þig velkominn og hugsa vel um þig Allir eru sammála því að útivist og hreyfing sé nauðsynleg fyrir alla og er fjallameðferð því góð fyrir líkama og sál. Fjarðabyggð er draumastaður fyrir útivist á svæðinu er fjöldi merktra gönguleiða og hefur svæðið að geyma eitt mest spennandi göngusvæði Íslands Gerpissvæðið milli Norðfjarðar og Reyðarfjarðar sem einnig er austasti hluti landsins. Sama hvert farið er blasir við stórbrotið útsýni, hægt er að njóta kyrrðarinnar og rýna í andlit fjallanna.
Fjallameðferð henntar öllum þar sem í henni getur falist ganga í fallegu umhverfi eftir miserfiðum leiðum, afslöppun í sundlaugunum með frábærri fjallasýn eða að gæða sér á máltíð úr hráefni sem fjöllin gefa.
Fjölbreytni Fjallameðferðar er mikil og hægt að sérsníða meðferð fyrir hvern og einn. Komdu í fjallameðferð, slakaðu á og njóttu þess að vera á góðum stað.
1.febrúar 2009
Dagskrá Göngu- og gleðivikunnar ,,Á fætur" í Fjarðabyggð tilbúin Dagskránna má finna hér
28. júní 2008
Áttundi og síðasti dagur Gönguvikunnar.
Frábær þátttaka var í viðburðum síðasta dags gönguvikunnar. Enn og aftur var aldeilis gott veður þrátt fyrir vonda spá.
Fyrir Krossanesið og upp að Flugvélaflakinu fóru 31. Blanka logn var nánast alla leið og léttskýjað. Smá haglél gerði þó þegar göngugarpar voru á Valahjalla, en stóð stutt yfir.
Í fjöruferðina í Vöðlavík fóru um 30 manns og nokkrir bættust við akandi. Hóparnir hittust á Karlstöðum þar sem slegið var upp veislu að hætti ferðafélagsmanna.Lummurnar og kakóið hjá Ínu og félögum sló í gegn eins og alltaf.
Lára Valdís Kristjánsdóttir sem átti eftir að ganga á eitt af fjöllunum fimm, (Goðaborg)
kláraði að ganga á það í dag og er þar með áttundi göngugarpur gönguvikunnar.
Norðan gjóla og kalt var á Mjóeyri í kvöld svo ákveðið var að halda lokakvöldvökuna í Randulffssjóhúsi. Mætingin þar var langt umfram væntingar en yfir 200 manns mættu og hlustuðu á Stákana hennar Stínu, Daníel og Ragga spila en í kvöld gekk hljómsveitin undir nafninu Randúlfarnir. Ungir sem aldnir skemmtu sér konunglega við söng og dans og Eskjumenn sáu um að gefa gestum og gangandi pylsur og drykki.
Frábær endir á frábærri viku, og er engin spurning um að þetta verður endurtekið að ári.
Að lokum viljum við hjá Ferðaþjónustunni Mjóeyri þakka öllum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í þessu verkefni með okkur og því fjölmarga fólki sem sóttu viðburði vikunnar kærlega fyrir okkur en það voru eitthvað á annað þúsund manns sem tóku þátt í þessu verkefni á einn eða annan hátt. Okkur telst til að um 250 manns hafi mætt í gönguferðirnar sem gerir rúmlega 20 manns að meðaltali í hverja ferð og verður það að teljast ansi góð þáttaka.
Myndir af kvöldvökunum má nálgast á heimasíðu Helga Garðarssonar www.simnet.is/hgard/folk11A/
Einnig koma myndir úr göngunum fljótlega á heimasíðu Ferðafélags Fjarðamanna www.simnet.is/ffau/
Og af öllu saman hér á síðunni hjá okkur.
www.mjoeyri.is
,,Á fætur í Fjarðabyggð” verður með svipuðu sniði vikuna 20.-27. júní 2009 svo látið ykkur hlakka til og takiði vikuna frá.
27. júní 2008
Sjöundi dagur Gönguvikunnar.
Síðasti dagur náttúruskólans var í dag. Farið var í Lamberará, nokkrir steinar teknir og bustaðir og lífverur þeirra skoðaðar í víðsjá í skólanum. Krakkarnir krufðu einnig fiskana sem veiddust á leikjanámskeiðinu í gær, skoðuðu innyfli, magainnihald, heilann ofl. Að því loknu fengu allir viðurkenningarskjal og myndir frá námskeiðinu.
Á leikjanámskeiðinu fóru börnin í Helgustaðarnámu og inn í hellinn. Þaðan fóru þau svo á Útstekk og heimsóttu dýrin á bænum. Bæði námskeiðin gengu mjög vel og þökkum við krökkunum kærlega fyrir samveruna þessa 5 daga.
Frábær þátttaka var í göngunni á Svartafjall í dag en 28 manns gengu upp á fjallið(1021m). Þetta var síðasta fjallið af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð, en 7 manns hafa gengið á öll fjöllin fimm í vikunni. Gott gönguveður var í dag en á fjallinu gekk þó á með hríðarbyljum. Leiðangursmenn þurftu að grafa sig niður á gestabókina þar sem mikill snjór var hér í vetur. Leiðsögumaður í þessari ferð var Kristinn Þorsteinsson.
Mjög góð þátttaka var einig í göngunni á Harðskafa (650)m). 15 manns mættu þar af þrír sem gengið hafa á Fjöllin fimm í vikunni og virðast þeir vera óstöðvandi í fjallgöngum þessa dagana. Gengið var upp frá Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði, upp með Bleiksá og þaðan upp í Ófeigsdal og uppúr honum upp á Harðskafann. Farið var svo niður af honum inn í Þverárdal og niður með ytri Þveánni og fossarnir í henni skoðaðir. Mjög gott gönguveður var en gekk á með skúrum á uppleiðinni en góð fjallasýn. Á Harðskafa fundu leiðangursmenn bein sem enn er ekki vitað hvort eru af hreindýri eða unga drengnum sem Arnaldur Indriðason skrifaði um í bókum sínum.
Hreindýrin voru ekki langt undan og sáu göngugarpar nokkuð stóra hjörð norðan í Eskihnjúknum. Leiðsögumaður í seinni göngunni í dag var Sævar Guðjónsson.
Kvöldvakan í kvöld var haldin á Randulffssjóhúsi en þar héldu uppi fjörinu þeir Daniel Ara og Ragnar Gretarsson. Sagnaþulurinn Berglind Ósk Agnarsdóttir sagði svo kvöldvökugestum nokkrar skemmtisögur, mikið var hlegið og sungið í kvöld.
Á kvöldvökuna mættu um 130 manns og gátum við ekki betur séð en allir skemmtu sér konunglega.
Síðasti dagur gönguvikunnar er á morgun og er vikan því 8 dagar alls. Á morgun verður gengið annars vegar fyrir Krossanesið og úr í Vöðlavík og hins vegar frá Karlsskála í Vöðavík niður á sand. Þessir tveir hópar hittast svo væntanlega í lummum á Karlsstöðum.
Lokakvöldvaka gönguvikunnar veður á Mjóeyri á morgun kl 20.00. Varðeldur verður tendraður, boðið upp á lifandi tónlist, grillaðar pylsur, ketilkaffi og kakó. Allir velkomnir.
26. júní 2008
Sjötti dagur Gönguvikunnar.
Í dag náðu börn náttúruskólans í fallgildrurnar sem settar voru niður á þriðjudag hér á Mjóeyri og fóru með þær í Grunnskólann. Heilmikið af skordýrum veiddust. Þá voru vatnadýrin sem veiddust í gær einnig skoðuð. Daginn enduðu þau á því að heimsæka 2 gæsarunga sem systurnar Fanný og Helena eiga. Á leikjanámskeiðinu í dag var farið á bryggjuna að veiða ásamt krökkunum úr leikjanámskeiði Austra. Fiskurinn sem veiddist verður notaður til að kryfja í náttúruskólanum á morgun.
Frábær þátttaka var í göngunni í dag en 15 manns gengu upp á Kistufell (1239m). Gengið var upp frá Áreyjum í Reyðarfirði upp hjálpleysu á tindinn. Gott gönguveður var en skyggni var ekki sem best á leiðinni upp á tindinum, á toppnum rofaði til svo sást út Reyðarfjörð. Snjór var í hlíðum fjallsins sem gerði gönguna bara þægilegri því þá þurfti ekki að klífa skriður og á niðurleiðinni gátu göngugarpar bæði ungir sem aldnir notað bossan til að renna sér á.
Leiðsögumaður í þessari ferð var Kristinn Þorsteinsson sem verkefnið ,,Höldum Kidda gangandi” snýst alfarið um, og má með sanni segja að það hafi tekist í dag sem og aðra daga gönguvikunnar.
Kvöldvakan í kvöld var nú haldin á Randulffssjóhúsi en þar héldu uppi fjörinu þeir Daniel Ara og strákarnir hennar Stínu (Guðmann, Þórhallur og Andri Bergmann).
Jens Garðar Helgason las upp úr bókinni Harðskafi eftir Arnald Indriðason, svona til upprifjunar fyrir þá sem ætla að ganga á hann á morgun. Fyrir þá sem ekki vita er Harðskafi fyrir ofan Kirkju og Menningarmiðstöðina á Eskifirði.
Á kvöldvökuna mættu um 120 manns og gátum við ekki betur séð en allir skemmtu sér konunglega við söng og dans.
25. júní 2008
Fimmti dagur Gönguvikunnar.
Þema náttúruskólans í dag var vatnalífríkið. Farið var í tjarnirnar ofan Eskifjarðar og út að Helgustöðum og vatnalifverum safnað og þær skoðaðar nánar.
17 manns fóru á Hádegisfjall (809m) í Reyðarfirði í dag og gekk ferðin mjög vel í góðu gönguveðri.Ágætt útsýni var af fjallinu en talsverður snjór var síðustu 400m upp á fjallið.
Fararstjóri í þessari ferð var Árni Ragnarson.
7 göngugarpar hafa nú farið á þrjú af fjöllunum fimm í gönguvikunni og er spennandi að vita hvort þeir klára þau öll í vikunni.
KFF félagar skelltu sér á sjó á Mjóeyrarbátunum og var veiðikeppni milli báta. Fiskuðu flestir þokkalega.
Kvöldvakan á Mjóeyri var með hefðbundnu sniði en frekar fáir mættu í kvöld eða um þrjátíu manns. Um hljóðfæraleik og forsöng sáu þeir Daniel Ara og Glúmur. Frekar kallt var í kvöld í hafgolunni og gæti það skýrt hversu fáir mættu. Vel gæti þó verið að það sé bara hálfleikur hjá kvöldvökugestum og þeir séu bara að safna kröftum fyrir seinni hálfleik.
Á morgun verður svo gengið á Kistufell (1239m) og er veðuraspáin fyrir morgundaginn góð.
24. júní 2008
Fjórði dagur Gönguvikunnar.
Jæja þá er fjórði dagur gönguvikunnar liðinn.
8 börn sóttu náttúrunámskeiðið í dag þar sem farið var í gróðurferð og plöntur og búsvæði þeirra skoðuð. Komið var fyrir fallgildrum í Mjóeyrarhlíðinni og verður spennandi að vita hvað verður í þeim í fyrramálið. Eftir hádegi var farið í leiki og sund.
Göngugarpar á Hólmatind (985m) voru 27 talsins þar af fóru 24 alla leið á toppinn og fengu stimpil í heftið sitt. Frábært gönguveður var í dag og var fjallasýn eins og best verður á kosið. Fararstjóri í ferðinni var Kristinn Þorsteinsson, en sérstakt átak er nú hjá skrifstofum Fjarðabyggðar undir nafninu ,,höldum Kidda gangandi”.
Að lokinni fjallgöngu var ekki amalegt að skella sé í heita potinn í sundlaug Eskifjarðar og láta þreytuna líða úr sér.
Kvöldvakan á og við Mjóeyri var svo til að toppa frábæran dag en þar komu um 150 manns saman í kvöld. Kajakklúbburinn Kaj kom með bátana sína og gátu börn á öllum aldri fengið að reyna sig í kajakróðri. Fjöldinn allur prufaði bátnan á lygnum Eskifirðinum.
Daniel Arason og Ragnar Gretarsson sáu svo um undirspil og forsöng við varðeldinn.
Frábær dagur og ég held við ljúgum engu þó við segjum að þetta hafi verið ,,FJALLEGUR” dagur í Fjarðabyggð þar sem fólk, firðir og fjöll skörtuðu sínu fegursta.
23.júní 2008
Kvöldvakan á Mjóeyri tókst vel í blíðskaparveðri og má segja að Eskifjörður hafi skartað sínu fegursta í kvöld. Sól og blanka logn var og um 80 manns mættu til að orna sér við varðeldinn og þáðu kaffi og kakó. Andri Bergamann og Daníel Arason sáu um hljóðfaraleik og söng. Ungir sem aldnir skemmtu sér konunglega.
23.júní 2008
Gengið á Goðaborg
Goðaborg er eitt af fjöllunum 5 í Fjarðabyggð. Goðaborg er 1132m á hæð og er gengið upp á það úr Fannardal í Norðfirði. 7 göngugarpar héldu á fjallið og voru stimpilkortin með í för. Ekkert var þó stimplað þar sem gestabókin og stimpillinn voru á kafi í snjó. Ferðin verður þó viðurkennd af Ferðafélagi fjarðamanna.Gott veður var á fjallinu en gekk á með þokubökkum fram eftir degi.
23.júní 2008
Náttúru- og leikjanámskeiðið hófst í dag.
7 krakkar tóku þátt í náttúrunámskeiðinu í dag. Farið var í fjöruferð. Fjörudýrum og fjörugróðri safnað og það svo skoðað nánar í náttúrustofu Grunnskólans á Eskifirði.
Aðeins 2 krakkar komu á leikjanámskeið en þau fóru í sveitina, gáfu heimalingum á Engjabakka og Útstekk, skoðuðu blóm, steina, fugla ofl. Mjög góður dagur enda veðrið fínt.
22.júní 2008
Öðrum degi gönguvikunnar lokið
Tvær göngur voru í dag. Farið var með Skrúð yfir að Stuðlum og gengið yfir í Sandvík og þaðan yfir í Vöðlavík. Ferðin gekk vel í góðu veðri. Smá þoka var í fjallatoppum en birti þegar leið á daginn. 19 manna gönguhópur fylgdu okkur upp í Sandvíkurskarð en 17 manna hópur hélt áfram til Vöðlavíkur þar sem jeppar byðu okkur. Vel á annað hundruð hreindyr sáust í ferðinni. Leiðsögumaður var Sævar Guðjónsson
Hin gangan var söguganga við Skuggahlíð. Átta manns nutu leiðsagnar Steinunnar frá Skuggahlíð. Leiðangurmenn voru sammála um að ferðin hafi verið vel lukkuð í alla staði og sögurnar alveg magnaðar.
Kvöldvakan á Mjóeyri tókst vel í blíðskapar veðri. Um 35 manns mættu til að orna sér við varðeldinn og þáðu kaffi og kakó. Þórhallur Þorvalds og Daníel Arason sáu um hljóðfaraleik og söng.
22.júní 2008
Minnum á Náttúru- og Leikjanámskeiðin
Í tengslum við Gönguvikuna ,,Á fætur" bjóðum við ,,Göngugörpum" að koma með börnin til okkar á meðan þeir ganga. Við ætlum, ásamt Náttúrustofu Austurlands, að vera með náttúrunámskeið fyrir hádegi mán-fös frá kl. 9.30 til 12.30. Bjóðum upp á léttar veitingar í hádeginu og förum svo í leiki og sund eftir hádegi til kl 17.00.
Verð krónur 500 fyrir hádegi og 500 eftir hádegi en frítt fyrir börn göngugarpa.
22.juní 2008
Boðið verður upp á 2 gönguferðir í dag
Stuðlar - Sandvík - Vöðlavík. Þriggja skóa ferð. Gengið um Sandvíkurskarð til Sandvíkur og áfram um Gerpisskarð til Vöðlavíkur. Mjög krefjandi ganga. Leiðsögumaður Sævar Guðjónsson.
Sögusteinar við Skuggahlíð í Norðfirði. Létt ganga fyrir alla fjölskylduna. Álfasteinn, Einbúi og Mundlaugarsteinn heimsóttir. Steinunn Steinþórsdóttir segir frá.
Um kvöldið verður svo varðeldur á Mjóeyri. Daníel Arason og Þórhallur Þorvaldsson sjá um lifandi tónlist. Ketilkaffi og kakó fyrir þá sem vilja. Allir velkomnir. Sjá nánari dagskrá
21.juni 2008
Fyrsti dagur gönguvikunnar ,, Á fætur" í Fjarðabygð.
Í dag var farin fyrsta ganga gönguvikunnar, en gegnið var á Barðsnes.
Ekki er hægt að segja annað en gönguvikan lofi góðu en 35 manns fóru með Skrúð, skipi Fjarðaferða, yfir að Barðsnesi og björgunarsveitin Gerpir ferjaði þar fólkið í land.
Veðurguðirnir voru göngugörpum hliðhollir og batnaði, veðrið eftir því sem leið á daginn.
Gengið var út með Rauðubjörgum, niður á Mónes og út að steingerfingunum. Þaðan var svo haldið út á Horn og síðan til baka inn að Barðsnesi þaðan sem skipið flutti göngufólk til baka til Norðfjarðar. Leiðsögumaður í ferðinni var Sævar Guðjónsson en að hanns sögn gat ferðin ekki gengið betur.
Varðeldur og lifandi tónlist var svo kl 21:00 á Mjóeyri að lokinni göngu. Þar mættu um 25 manns og skemmtu sér konunglega. Um tónlistina sáu þeir félagar Daniel Arason (harmonikku) og Ragnar Grétarson (kontrabassa).
Boðið var uppá Ketilkaffi og gott kakó fyrir þá sem þiggja vildu.
Þá var boðið upp á Sólstöðugöngu á Mosfell við Stöðvarfjörð. Alls 18 manns mættu í gönguna og gekk ferðin mjög vel.
16.júní 2008
,,Á fætur"
Drífðu þig á fætur og taktu þátt í frábærri dagskrá fyrir alla fjölskylduna dagana 21.-28.júní. Gengið verður á fjöll, farið í fjöruferðir, gengið á reyfaraslóðir þegar farið verður á fjallið Harðskafa, boðið uppá kvöldvökur við varðeld, ýmis tilboð í gangi, náttúru og leikjanámskeið fyrir börnin, keppt um titilinn Fjallagarpur Fjarðabyggðar, boðið uppá Fjallameðferð og margt fleira. Dagskránna má nálgast hér.
8.júní 2008
Brúðkaupsgestir í brunch á Randulffssjóhúsi
Daði Þorsteinsson og Margrét Sara Oddsdóttir giftu sig í gær í Eskifjarðarkirkju. Mikill fjöldi gesta kom til að fagna þessum merka degi með þeim og áður en gestir lögðu af stað til síns heima buðu hjónin upp á brunch í Randulffssjóhúsi.
Við óskum þeim hjónum til hamingju með hvort annað og góðrar ferðar í brúðkaupsferðinni.
7.-8.júní 2008
Enn meiri óvissa
Þrettán manna vinnuteimi Alcoa fór í gær í sólahrings óvissuferð. Ýmislegt var brasað og margt skoðað en ferðin endaði á bátsferð til Viðfjarðar þar sem hópurinn borðaði kvöldmat og gisti um nóttina.
6.júní 2008
Kennarar í óvissu
Kennarar Grunnskóla Eskifjarðar fóru með Sævari í óvissuferð í dag. Ferðin tókst vel, mikið sungið og mikið gaman!!
4.júní 2008
Færeyingar í heimsókn
Það var mikið fjör þegar stjórnendur færeysku Rafveitunnar kom í heimsókn til okkar á Randulffssjóhúsið í dag. Færeyingarnir gæddu sig á hákarli og brennivíni og eskfirskum harðfiski. Þá fengu þeir matreiddann fisk úr firðinum og Böðvar frá Brunnavöllum sá um harmonikkuspil.
Markmið ferðarinnar var að skoða álver og virkjanir á Íslandi og að sjálfsögðu komu þeir austur og heimsóttu Alcoa skoðuðu Kárahnjúkavirkjun, diselrafstöðina á Norðfirði söfn og fl.
30.maí 2008
,,Pottormar” í óvissuferð
Matarklúbburinn ,,Pottormar” komu til okkar í óvissuferð. Ferðin var byrjun á matarkvöldi sem klúbburinn var með síðar um kvöldið.
28.maí 2008
,,Húllumhæ dagar”
Unglingastig Nesskóla koma í heimsókn í dag í tengslum við ,,Húllumhæ daga” sem nú eru í gangi. Farið var í bátsferð, út í Silfurbergsnámu, grillað ofl. gaman.
24.-25.maí 2008
Sandvíkurferð
Um helginga fór Sævar ásamt Jóni Ævari, forstöðumanni Náttúrustofu Austurlands og Ingvari Ísfeld í hreindýraleiðangur í Sandvík.
Óvenju fáar kýr voru í Sandvík þetta árið en leiðangursmenn sáu á bilinu 50-60 dýr og um 25 kálfa. Að sögn Sævars voru dýrin óvenju dreifð en þeir félagar náðu að merkja 2 kálfa, eina kvígu og einn tarf. Sömu daga voru þau hjónin Gísli Guðjónsson og Jóhanna Lindbergsdóttir í Vöðlavík og sáu þau töluvert af kúm með kálfa þar einnig sáu þau Grátrönu í víkinni.
Bátaleigan færð í Randulffssjóhús
Bátaleiga Mjóeyrar verður nú gerð út frá Randulffssjóhúsi. Opnunartími bátaleigunnar er frá 17-22 alla virka daga og frá 10-22 um helgar. Eða samkvæmt samkomulagi. Randulffssjóhús verður opið almenningi á opnunartíma bátaleigunnar eða eftir samkomulagi. Meira um Randulffsjóhús
Gönguvikan ,,Á fætur í Fjarðabyggð”
Búið er að sjóða saman dagskrá fyrir gönguvikuna ,,Á fætur” í Fjarðabyggð sem verður vikuna 21.-28.júní 2008.
Gönguvikunni er ætlað að skapa nýja, heilsusamlega og fjölskylduvæna vöru í ferðaþjónustu utan háannar. Um er að ræða fjölbreytta dagskrá sem byggist aðallega á menningartengdum göngu- og skoðunarferðum alla dagana. Kvöldvökur og ýmsar kynningar verða svo á hverju kvöldi auk veglegrar lokahátíðar. Einnig verður boðið upp á námskeið s.s. göngustafanámskeið, rötun, náttúrunámskeið o.fl. Er það von þessarra aðila að verkefnið verði árlegt, og alltaf á sama tíma. Dagskrána má nálgast hér
18.05.2008
Ferðaleiðsögumenn
Útskriftarhópur úr Ferðamálaskóla Íslands kom í heimsókn á Randulffssjóhús. Boðið var upp á hákarl, brennivín og harðfisk frá Eskifirði.
16.05.2008
Óvissuferð Grunnskóla Reyðarfjarðar
Kennarar grunnskólanns á Reyðarfirði komu í óvissuferð í dag.
Ferðin endaði í grillveislu í Austrahúsinu og var að heyra að hópurinn hafi skemmt sér vel!
30.04.2008
Cathy Harlow
Í vetur tók Sævar þátt í námskeiði fyrir hönd Mjóeyrar sem skipulagt var af Útflutningsráði. Námskeiðið bar heitið Hagvöxtur á heimaslóð og fengu Þátttakendur námskeiðsins fengu fræðslu og hjálp við markaðssetningu og vöruþróun innan síns fyrirtækis, auk þess sem fjallað var um samvinnu og aukið vinnuframboð ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Nú hefur farið fram úttekt á árangri þátttakenda í námskeiðinu, einskonar gæðamat. Það var Cathy Harlow, sem sá um úttektina fyrir Útflutningsráð. Hún var mjög ánægð með dvölina á Austurlandi og fannst svæðið mjög spennandi og fallegt. Cathy gisti á Mjóeyri eina nótt og borðaði með okkur kvöldverð ásamt starfsmanni frá Fjaraferðum og Austfjarðaleið.
18.-20.apríl 2008
Fjallameðferð
Fyrsta fólkið sem hlaut formlega Fjallameðferð hjá ferðaþjónustunni Mjóeyri voru þau Jón Viðar og Gréta úr Reykjavík en meðferðin hjá þeim fólst í því að veiða sér til matar og ferðast um fjöll og firnindi á skíðum. Meira um Fjallameðferð
22.04.2008
Menntaskólinn á Egilsstöðum í heimsókn
Nemendur Menntaskólanns sem setið hafa söguáfangann ,,Saga Austurlands" komu ásamt kennara í heimsókn til Eskfjarðar í dag. Sævar fór ásamt Geir Hólm með hópinn út að Útstekk, Helgustaðarnámu, Sjóminjasafnið og fleiri staði. Auk þess sem stoppað var á Mjóeyri í hádegismat og heilsað upp á Eirík Þorláksson.
3.-5.mars 2008
Rokkað á Eskifirði
Rokkhringur Rásar 2 og Monitor með hljómsveitunum Dr. Spock, Benny Crespo´s Gang og Sign ásamt Erlu og Sædísi frá Monitor, Kidda myndatökumanni og Pétri bílstjóra gistu hér á Mjóeyri á ferð sinni um landið. Hljómsveitirnar héldu velheppnaða tónleika í Valhöll föstudagskvöldið 4.apríl
29.feb – 2.mars 2008
Brettaféag Íslands í heimsókn
Rúmlega 20 bretta krakkar frá Brettafélagi Íslands komu í heimsókn um helgina og héldu mót í Oddskarði. Auk þess að vera í fjallinu gerðu þau líka ,,Wallride” á Vitanum og geru nokkur stökk í bænum.
22.03.2008
Páskaeggjaleit
Um 50 krakkar tóku þátt í páskaeggjaleitinni í ár. Þetta var í þriðja sinn sem Ferðaþjónustan á Mjóeyri stendur fyrir slíkri leit. Eggin voru falin víðsvegar á eyrinni, bæði stór og lítil . Flestir fundu egg en eins og áður fór enginn tómhentur heim
20.02.08
Austfirsku Alparnir í Oddsskarði
Frábært skíðafæri
hefur verið í Oddsskarði í vetur og hefur
skíðasvæðið nú verið opið
í 40 daga. Nánast ekkert hefur þurft að
nota snjóvélarnar en nýi troðarinn hefur
komið sterkur inn.
Ferðaþjónustan á Mjóeyri býður
skíða og brettafólk velkomið. Við leggjum
sérstakan metnað í að þjóna
skiða og brettahópum með fjölbreyttri þjónustu.
Hikið ekki við að hafa samband og leita tilboða.
04-02-08
Myndasýning
Myndasyning af gönguferð um Gerpissvæðið
var hjá Útivist í kvöld. Sævar
leiðsagði myndasýninguna og er ekki hægt
að segja annað en viðbrögðin hafi verið
mjög góð.
Um hundrað manns mættu á sýninguna og
er það met mæting hjá Útivist í
vetur.
Við á Mjóeyri þökkum fyrir frábærar
móttökur og bakkelsi.
12-12-07
,,Á fætur í Fjarðabyggð”
Ákveðið hefur verið að halda gönguviku
í Fjarðabyggð í sumar eða nánar
tiltekið vikuna 21-28 júni. Við á Mjóeyri
sjáum um skipulagningu dagskrár og verður það
gert í samvinnu við Ferðafélag fjarðamanna,
Fjarðabyggð og fl. Boðið verður upp á
fjölbreytta dagskrá og verða kvöldvökur
á hverju kvöldi. Miðað er við að öll
fjölskyldan geti mætt og notið viðburða
við allra hæfi.
Dagskrá vikunnar verður nánar kynnt hér
þegar nær dregur.
15.04.2007
Málþing
um Gerpisfriðland
Málþing
um friðlýsingu Gerpissvæðisins var haldið
í dag í Kirkju- og menningarmiðstöðinni
á Eskfirði. Um 60 manns mættu . Meðal
efnis var kynning á fyrirhuguðu friðlandi,
gróðri, dýralífi, jarðfræði
og ferðaþjónustu á svæðinu.
Ferðaþjónustan Mjóeyri var með
erindi á málþinginu og kynnti starfsemi
sína og annara þjónustuaðila á
svæðinu.
|
| |