.

.

.

.



Skíðafólk - Skíðaævintýri á Eskifirði

Ferðaþjónustan Mjóeyri ,,við rætur Austfirsku Alpanna" býður í vetur ævintýralega skíðapakka.
Við bjóðum aðgang að einu allra besta skíðasvæði Íslands í Oddsskarði, en auk þess snjósleðadrátt upp á fjöll fyrir skíða og brettafólk. Pakkarnir eru sniðnir að mismunandi þörfum hvort sem er fyrir einstaklinga eða hópa t.d yfir helgarpakka, Páska-, eða sólarhringspakka. Pakkarnir okkar henta jafnt fyrir brekkuskíði sem gönguskíði. Þá bjóðum við leiðsögn um fjöll og eyðifirði fyrir sleðamenn. Á Mjóeyri er góð aðstaða fyrir umhirðu skíða og bretta.

Frekari upplýsingar um útfærslu og verð má fá hjá Sævari í síma 698-6980 eða 477-1247

Dæmi um skíðapakka
Skíðapakki 1
Gisting + Morgunmatur + Nesti + Skíðapassi + kvöldmatur
Möguleiki á akstri til og frá flugvelli, akstri til og frá skíðasvæði, leiðsögn og s.v.frv.

Dæmi um útfærslu á pakka:
Komið á Mjóeyri á föstudagskvöld og til baka á sunnudagskvöld
Gisting í tvær nætur + Morgunmatur + Nesti + Skíðapassar í Oddsskarð + Kvöldverður = 24.400kr m.a.v 1 pers. Sér tilboð fyrir hópa.


Skíðapakki 2
Gisting + Morgunmatur + Nesti + Skíðapassi + kvöldmatur + snjósleðadráttur.
Möguleiki á akstri til og frá flugvelli, akstri til og frá skíðasvæði, leiðsögn og s.v.frv.

Dæmi um útfærslu á pakka:
Komið á Mjóeyri á föstudagskvöld og til baka á sunnudagskvöld
Gisting í tvær nætur + Morgunmatur + Nesti + Skíðapassi í Oddsskarð + Kvöldverður + dráttur á snjósleða upp á 2 fjöll = 34.400kr m.a.v 1 pers. Sér tilboð fyrir hópa.