
Hér er mikil náttúrufegurð, veðursæld og hentugt landsvæði til ýmissa veiða. Við bjóðum upp á veiði- og útsýnisferðir á sjó og landi.
Á sumrin bjóðum við upp á hreindýraleiðsögn, ásamt bíl með bílstjóra, aðstöðu fyrir verkun og kælingu, úrbeining þannig að veiðimenn geta fengið kjötið sent til síns heima tilbúið í neytendaumbúðum. Auk þess er gistiskálinn okkar sérstaklega hugsaður með þarfir veiðimanna í huga.
Frá Mjóeyri er stutt á fiskimið og á svartfuglaveiðar. Þegar í land er komið bjóðum við gestum okkar að grilla og njóta aflans við Gistiheimilið á Mjóeyri.
Við getum útvegað veiðileyfi í nærliggjandi ár svo sem Eskifjarðará ,Noðrfjarðará og Reyðafjarðará. Í þessum ám er töluverð silungsveiði svo og í Víkurvatni. |